Skilmálar og afbókunarreglur
Hér fyrir neðan finnur þú víðtækar upplýsingar um mikilvæg atriði á borð við greiðslu, bókanir, e-miða, ferðir og afbókanir.
Þetta eru almennir þjónustuskilmálar og afbókunarreglur Bláa Lónsins hf. (Bláa Lónið), skráð að Grindavíkurbraut 9, 240 Grindavík.
Þessir skilmálar og reglur eiga við um alla gesti Bláa lónsins og Retreat Spa sem kaupa vörur/þjónustu á www.bluelagoon.com/is, hér eftir kallað vefsvæði.
1. Verð og greiðsla
Allar pantanir sem gerðar eru á vefsvæðinu skulu greiðast að fullu með kreditkorti þegar þær eiga sér stað. Öll verð á vefsvæðinu eru sjálfgefin í EUR. Þegar þú hefur hafið bókunarferlið getur þú valið ISK, USD eða GBP sem aðra gjaldmiðla. Hins vegar verða kaupin alltaf í ISK. Verð innihalda VSK og alla aðra skatta ásamt þjónustugjöldum. Verð geta breyst án fyrirvara. Eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi og/eða reikningur gefinn út munu ekki koma til nein aukagjöld nema í þeim tilvikum sem verðhækkun á sér stað sökum laga- eða gjaldeyrisbreytinga.
2. Kaup á þjónustu og/eða vörum
Kaup sem ná yfir fjölbreytta þjónustu og/eða vörur takmarkast af því sem í boði er þegar heimsóknin á sér stað. Allar vörur og/eða þjónusta sem innifalin er í aðgangspakkanum, s.s. borðapantanir á veitingastöðum, bókanir í nudd, fylgihlutir og fleira, er háð framboði. Séu viðeigandi vörur og/eða þjónusta ekki í boði af einhverri ástæðu átt þú rétt á endurgreiðslu á þeirri tilteknu vöru/þjónustu eða að breyta tíma- og/eða dagsetningu bókunar þinnar án aukakostnaðar.
Við kaup á áskriftarkorum og við bókun á nýtingu áskriftarkorta, gildir eftirfarandi:
- Einstaklingskort gildir einungis fyrir þann einstakling sem skráður er fyrir kortinu, auk tveggja barna korthafa í fylgd með honum.
- Fjölskyldukort gildir einungis fyrir þá einstaklinga sem skráðir eru fyrir kortinu og börn þeirra. Að hámarki geta tveir einstaklingar og fjögur börn þeirra nýtt kortið. Börn þurfa ávallt að vera í fylgd með fullorðnum.
Áskriftarkortin gilda fyrir börn korthafa á aldrinum 2-13 ára. Eldri kort sem hafa verið framlengd vegna Covid-19 og eru enn í gildi miða við aldurinn 2-15 ára.
Nafnabreyting er hvorki leyfilega á einstklingakortum né fjölskyldukortum og ekki er hægt að leggja kortin í geymslu. Ekki er hægt að endurgreiða útgefið kort.
Við notkun á áskriftarkortum þarf að framvísa persónuskilríkjum við komu í Bláa Lónið.
Misnotkun áskriftarkorts getur leitt til afturköllunar þess af hálfu Bláa Lónsins.
3. E-miðar
Þegar þú bókar á vefsvæðinu færðu rafrænan miða sem þú getur aðeins notað einu sinni. Sé reynt að nota hann aftur verður honum hafnað.
Ólögleg endursala eða tilraun til endursölu er grundvöllur fyrir haldlagningu og ógildingu án endurgreiðslu. Miðar sem fengnir eru hjá óviðurkenndum aðilum gætu verið týndir, stolnir eða falsaðir miðar, og eru ógildir ef svo er. Ekki er hægt að leysa út fé fyrir miða. Hvers kyns afritun miða er ólögleg.
Miðinn er eingöngu gildur á þeirri dag- og tímasetningu sem valin var í bókunarferlinu og kemur skýrt fram á miðanum sem þú fékkst sendan eftir að þú gekkst frá kaupunum. Ef þú mætir ekki á þeirri dag- og tímasetningu sem þú hafðir pantað getur Bláa Lónið ekki ábyrgst framboð á vöru og/eða þjónustu.
Ef þú hefur bókað einkabúningsherbergi hjá Retreat Spa verður búningsherbergið frátekið fyrir þig á þeirri dag- og tímasetningu sem þú valdir. Ef þú mætir seint framlengist dvöl þín ekki sem því nemur. Búningsherbergið er frátekið fyrir þig í fimm klukkutíma, talið frá komutíma samkvæmt bókun þinni.
4. Breytingar á bókun
4a.Bláa lónið
Viljir þú gera breytingu á staðfestri bókun, kann það að hafa í för með sér kostnað fyrir þig. Viljir þú breyta úr dýrari miða í ódýrari, verður mismunurinn ekki endurgreiddur. Hægt er að breyta bókun á MyBluelagoon.
5. Afbókanir og lokanir
Blue Lagoon/Destination Blue Lagoon/Retreat Spa
Allar afbókanir verða að berast Bláa Lóninu í gegnum MyBluelagoon.
Bláa Lónið
Ef þú afbókar með meira en 24 klukkustunda fyrirvara: 100% endurgreiðsla
Ef þú afbókar með minna en 24 klukkustunda fyrirvara: Engin endurgreiðsla
Retreat Spa
Ef þú afbókar með meira en 48 klukkustunda fyrirvara: 100% endurgreiðsla
Ef þú afbókar með minna en 48 klukkustunda fyrirvara: Engin endurgreiðsla
Bláa Lónið hf. áskilur sér rétt til að loka starfsstöðvum sínum tímabundið og afturkalla allar bókanir og pantanir þegar ómögulegt er að veita alla þjónustu fyrirtækisins vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure), svo sem vegna veðurs, verkfalla, náttúruhamfara, tilmæla yfirvalda eða hvers kyns frávika sem ekki eru á valdi fyrirtækisins.
Við áskiljum okkur einnig rétt til þess að loka starfsstöðvum okkar tímabundið vegna nauðsynlegs viðhalds eða af öryggisástæðum.
6. Samgöngur
Rútuferðir til og frá Bláa Lóninu til og frá Reykjavík og Keflavíkurflugvelli, eru í boði í bókunarferlinu sem aukaþjónusta. Þegar þú bókar ferð með aðgangspakkanum þínum færðu sendan tölvupóst frá Destination Blue Lagoon sem inniheldur farmiðann.
7. Ljósmyndir, myndskeið og samfélagsmiðlaefni
Ekki má nota ljósmyndir, myndskeið eða samfélagsmiðlaefni sem tekið er í Bláa Lóninu, á Retreat Silica Hotel eða í annarri aðstöðu Bláa Lónsins í viðskiptatengdum tilgangi, án fyrir fram skriflegs samþykkis frá okkur.
Ef óskað er eftir leyfi til myndatöku vinsamlegast fylltu út umsóknarformið á vefsíðu okkar.
Við áskiljum okkur rétt til að fara fram á bætur vegna allrar notkunar sem stangast á við skilyrði okkar.
8. Ábyrgð og tryggingar - óviðráðanleg atvik
Bláa Lónið undanskilur sig ábyrgð á öllu tapi, skemmdum, slysum, veikindum eða breytingum á áætlunum sökum óviðráðanlegra atvika (force majeure) svo sem vegna veðurs, verkfalla, náttúruhamfara, tilmæla yfirvalda eða hvers kyns frávika sem ekki eru á valdi fyrirtækisins og á útgjöldum vegna einhverra þessara ástæðna.
Bláa Lónið undanskilur sig ábyrgð á verðmætum gesta sem gætu glatast eða skemmst meðan á heimsókninni stendur. Slíkt tap eða útgjöld því tengd eru á persónulegri ábyrgð gesta.
Við ráðleggjum öllum viðskiptavinum okkar að hafa gilda ferðatryggingu. Slíka tryggingu ætti að vera hægt að fá í búsetulandi þínu.
9. Öryggisskilmálar og hegðunarreglur
Við biðjum þig að kynna þér öryggisskilmála Bláa Lónsins vandlega. Skilmálarnir eru aðgengilegir hér https://www.bluelagoon.com/is/oryggisskilmalar.
Gestum Bláa Lónsins ber í öllum tilvikum að fara eftir fyrirmælum starfsfólks og settum reglum. Óviðeigandi hegðun, hvort sem er gagnvart gestum Bláa Lónsins eða starfsfólki, kann að leiða til tafarlauss brotreksturs úr Bláa Lóninu og/eða þess að viðkomandi verði meinað um aðgang að starfsstöðvum okkar.
10. Almenn ákvæði
Þú samþykkir að hvaða krafa, málsókn eða málshöfðun sem kemur til vegna þessara ákvæða og skilmála, og/eða keyptrar vöru/þjónustu lúti, og skuli túlkuð í samræmi við íslensk lög. Ágreiningsmál vegna framangreinds má reka fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
11. Breytingar á skilmálum
Við áskiljum okkur rétt til að gera breytingar á þessum þjónustuskilmálum og afbókunarreglum hvenær sem er. Dagsetningu síðustu endurskoðunar þessara þjónustuskilmála er að finna neðst á síðunni. Áframhaldandi notkun þín á vefsvæðinu eftir slíkar breytingar telst sem staðfesting þín á breyttum skilmálum og samþykki þitt um að hlíta breyttum skilmálum.