Moss Restaurant
Michelin stjörnu veitingastaður með óbilandi metnað fyrir frumleika og sköpunarkrafti í íslenskri matargerð. Þaðan má njóta stórbrotins útsýnis yfir hraunbreiðuna sem umlykur Bláa Lónið.
Matseðlar
Leyfðu matreiðslumeisturum Moss að gleðja bragðlaukana með ljúffengum réttum úr fersku hráefni úr íslenskri náttúru – frá fjalli að fjöru.
Samsettir seðlar
Fjölrétta matseðillinn okkar breytist eftir árstíðum og byggir á ferskasta staðbundna hráefni sem er í boði hverju sinni.
7 rétta matseðill | 34.900 á mann
Klassísk vínpörun | 29.900 á mann
Eðalvínpörun | 59.900 á mann
Vegan matseðill
Upplifðu eitthvað alveg nýtt í metnaðarfullri og spennandi grænkeraveislu.
Bóka borðFerskt. Staðbundið. Árstíðatengt.
Matreitt með virðingu og umhyggju fyrir landinu okkar – og hinni ríkulegu matarkistu sem hér er að finna.
Aggi Sverrisson
Aggi fæddist á Íslandi og byrjaði kokkaferilinn snemma, eða 18 ára að aldri. Hann flutti síðar til Englands þar sem hann gekk til liðs við Raymond Blanc hjá Le Manoir aux Quat' Saisons sem er elsti tveggja stjörnu Michelin veitingastaður landsins og fékk hann stöðu yfirkokks þar árið 2005. Tveimur árum seinna fór hann út í sjálfstæðan rekstur og var aðalhugmyndasmiður, eigandi og yfirkokkur veitingastaðarins Texture Restaurant & Champagne Bar. Staðurinn fékk Michelin stjörnu árið 2010 og hélt þeirri eftirsóttu viðurkenningu í 10 ár. Árið 2020 snéri Aggi aftur til heimahaganna og sinnir nú stöðu yfirkokks á Moss Restaurant þar sem hann blandar asískum áhrifum við sígilda íslenska matargerð og umbreytir þannig árstíðarbundnum hráefnum í sælkeraupplifanir.
"The food is amazing. Head chef Agnar Sverrisson worked with me for five years. His values are even more pure than mine – he's a genius.”
Raymond Blanc OBE, chef patron at Le Manoir aux Quat' Saisons
Kitchen's table á Moss
Fylgstu með töfrunum verða að veruleika við opna eldhúsið á Moss. Taktu þér sæti við háborðið og fylgstu með einkakokki matreiða ferskustu hráefni sem völ er á í metnaðarfullu samspili hefða og nýsköpunar. Réttirnir eru bornir fram með sérvöldum vínum. Niðurstaðan er ógleymanleg sælkeraupplifun sem er í senn tímalaus og tilkomumikil.
Bókanir berist á retreathotel@bluelagoon.com
Vínkjallarinn
Í vínkjallaranum okkar, höggnum inni í aldagamalt hraun, eru veggirnir þaktir flöskum með eðalvíni frá öllum heimshornum, sem vínþjónn okkar annast af ástríðu og visku.
Sælkerakvöld með Gavin Kaysen á Moss
Þann 11. nóvember heldur Chef & Wine Pairing viðburðaröðin áfram með einstakri matarupplifun á nýkrýnda Michelin veitingastaðnum Moss.
NánarBókanir og nánari upplýsingar
Opnunartími Miðvikudaga til sunnudaga frá kl. 18:00 Staðsetning Retreat Hotel Norðurljósavegur 11 240 Grindavík
Bókanir retreathotel@bluelagoon.com +354 420 8700 Klæðnaður Snyrtilegur Aldurstakmark 12 ára
Sælkeraupplifun með Dom Pérignon og Claude Bosi á Moss Restaurant
Þann 26. maí mun the Retreat bjóða upp á einstaka sælkeraupplifun á veitingastað sínum, Moss Restaurant, þegar næsta kvöld í viðburðaröðinni Guest Chef & Wine Pairing Series verður haldið.
Nánar